Neskaupstaður-framhald.
And I'm back...
Neskaupstaður var annars snilld.. fórum einnig í smá jeppaferð. Ég, Oddný, Denni og Ellert. Lítill 4 manna jeppi, hentumst út um öll allt, inn í öll snjósköfl og allan andskotann með Muse í botni og Ellert við stýrið. Helvíti gaman sko! ;) Mestmegnis svo bara hangið og gert ingen ting. Mest pirrandi í heimi að myndavélin er batteríslaus og gat því ekki tekið neeeeinar myndir, eins og það er geðveikt mikið sem hægt væri að taka myndir af. Stjörnurnar þarna fyrir austan eru flottastar í heimi. Það er eins og það sé bara stórt tjald yfir manni; algjörlega brillant!
Fór svo í bæinn aftur. Ekki gaman að fara upp í flugvélina, en samt fínt að komast heim. Reykjavíkaðist í viku. Var mestmegnis með Evunni minni. Rifjuðum upp seinasta sumar með því að kíkja í Bláa Lónið. Algjör snilld að fara að kveldi til þangað. Fáir á ferð, stjörnurnar, gufan.. fullkomið. Á föstudeginum fórum við svo að taka myndir hjá Perlunni og svona, for Eva's project. Kíktum svo aðeins á Cafe París og fengum eins og 2 Strawberry Dequiri. Vorum svo heppnar að lenda á fullum eldri köllum sem splæstu þessu á okkur og spjölluðum við þá.. fooookk leiðinlegir sko! ;) Endaði skemmtilega eða þannig.. kallandi okkur þjófa og vesen.. haha, samt aðallega fyndið. Svona er það þegar maður er ofurölvi og ruglaður!
Á laugardeginum vakna ég svo við hina yndislegu rödd Hrefnu Mjallar elskunnar minnar.. best í heimi! Hún og Þórir voru þá komin til mín og mömmu og borðuðum öll grjónagraut saman. Ég, Hrefna og mamma skelltum okkur svo í leikhús á Sitji Guðs englar.. eftir Guðrúnu Helgadóttur. Bara frábært barnaleikrit, hafði mjög gaman. Sýnir hvað maður er mikill vælukjói að ég táraðist bara og fékk kökk í hálsinn við einhver nokkur atriði þarna... var samt mjööög sorglegt sko, þannig.. fokkjú.
Kíktum svo á ömmu gömlu sem var hress, níræð og hlægjandi eins og alltaf. Maður verður að fara að heimsækja þetta oftar..;)
Um 8 leytið var ég svo mætt heim til Bigga sem var á haus að hlusta á gay music..;) ..og að elda.. Og ég hjálpað honum með það, ógeðslega dugleg skilurðu þar sem kokkahæfileikar mínir eru alveg einstaklega takmarkaðir. Stebbi og Elva mættu svo á hárréttum tíma og við átum þennan geeeðveika mat... umm, ég er geðveikt svöng, langar í þetta núna. Allavega.
Duttum svo bara í það, einstaklega gaman að vera öll 4 saman aftur.. hlógum af okkur rassgatið í drykkjuleikum og veseni.. ;D Sigga litla kom svo og skutlaði okkur öllum niður í bæ þar sem við fórum inn á Sólon, reyndar eftir örugglega svona 40 minútna bið!! En vorum þar, alveg svona 8 manns örugglega, og það var bara geðveikt stuð! Shitt, verðum að endurtaka þetta krakkar!
Sunnudagurinn einkenndist svo mestmegnis af leti og öðru þvíumlíku eins og á að gera á sunudögum.. ;)
Á mánudeginum skellti ég mér svo aftur til Neskaupstaðar. Oddný og Daði höfðu ekki hugmynd um að ég væri að koma... ohhh svo gaman! Ég og Denni komum heim til þeirra og Denni lokaði hurðinni og fór inn. Ég stóð bara enþá inni í forstofu þar sem þau sáu mig ekki. Hann fer svo bara inn og spjallar eitthvað og ég reyni að klæða mig úr skónum mjööög hljóðlega. Ætlaði svo að bíða eftir einhverju fullkomnu mómenti. Vildi helst að þau færu öll inn í herbergi svo ég gæti læðst inn og sest í sófann bara og kallað svo: Eigiði kók? ..or something. En það var ekkert að koma..! Svo ég labbaði inn eftir smá tíma og sagði Sjitt, ég er búin að standa þarna alltof lengi! Og svipurinn á Oddný var priceless! ;) Gaman já! Leiðinlegt nei!!
Er svo enþá hérna.. búin að vera í næstum viku núna. Sem er einmitt mjöööög gott fyrir hægðirnar að gera! Tala nú ekki um ef þú færð þér Kornflegs fyrst! Erum búin að hanga, glápa á þónokkrar bíómyndir. Braindead, Beerfest.. göbbuðum strákana svo í The Notebook og Click sem ég hef báðar séð en finnst bara svooo góðar. Karlkynið varð þó klökkara yfir Click heldur en Notebook!! Uss.. en ég skil það samt..;) Great story! Can I eat it? Ég og Oddný höfum svo tekið Passatinn hans Denna í gísl nokkrum sinnum og keyrt til Reyðarfjarðar og Egilsstaða og svona. Ég er orðin helvíti kræf. Ef maður getur keyrt Oddskarðið á 100 með öllum sínum kröppu semi U-beygjum er maður fær í flestan sjó! Fórum á föstudaginn til Reyðarfjarðar að tala við Guðmund ráðingarstjóra hjá ESS út af vinnunni. Tölum svo aftur við hann á morgun og fáum að vita meira. Annars er bara búið að vera briiilliant að vera hérna.. eins og ég heldi að ég myndi ekki þrífast svona lengi í svona litlum bæ.. Plús það að bræðslufýlan er að fara með mig á meðan allir segja: Hvaða fýlu ertu að tala um?! ;)
Duttum að sjálfsögðu í það á föstudag og laugardag.. haha. Held að drykkjuleikir séu orðnir uppáhaldsíþróttin mín.. ;) Sit svo hérna í tölvunni ógeðslega löt eitthvað að hlusta á Coldplay.. já, fékk meira sett teppi á mig akkurat núna bara fyrir að vera svona löt! :)
Annars er stefnan tekin á Reykjavíkina aftur í vikunni og fara að vinna eitthvað af viti. Snilldin Einar. Svo er ég farin að fá massasumarfíling í mig. Langar svo í útilegu, roadtrip, útlönd! Eina sem ég veit um sumarið er roadtrip með Stebba, Elvu og Bigga, eitthvað búið að vera að tala um að fara á Hróarskeldu, hélt að planið væri Þjóðhátiíð, veit ekki alveg enþá hvernig það er núna, kannski roadtrip með Oddnýju, Daða og Denna.. það er engin utanlandsferð þarna inni í!! :( Hókípóki FERÐAhópurinn minn... HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?! Eigum við ekki að fara að gera eitthvað í þessu? Hver ætlar að koma með mér til ÚGGLANDA?
Happy Beauty out.
5 athugasemdir








